Ég vil byrja á því að lýsa óánæju minni með hvað menn eru
lélegir að commenta.....örfáir commentuðu á síðasta pistil og þykir
mér það miður....það er jú sumar og sennilega ætti það að hafa
einhver áhrif, menn rétt kíkja inn á síðuna og "hafa ekki tíma til
að commenta" jeeee.......nei, endilega skiljið eftir línu.
Það er frekar mikið um að vera hjá mér þessa dagana.....hef
verið á fullu í vinnunni, eru fáliðaðir og því mikið að gera og
maður frekar þreyttur eftir daginn....svo er meira að segja búin að
vera talsverð yfirvinna þannig að það er enn meiri þreyta þá.... en
gott að fá yfirvinnu og kvarta ég ekki yfir því! Svo er það HM sem
er nú senn að ljúka..... fór á leik í gær með Jóni Torfa á
Dátann-Ali..... ætluðum að fá okkur borgara og svona, en
nei....ekki hægt og ég fékk mér því það eina sem var í boði annað
sem var poki að flögum, sem voru líka svona illa vondar.....um
miðjann síðari hálfleik sofnaði kallinn svona líka værum blundi í
sófanum á dansgólfinu uppi þar til að venjulegur leiktími var
liðinn....þá var staðan 0-0 og klukkan rétt að verða 9 og ég ætlaði
að vera mættur út á flugvöll kl 9 að ná í Thomas sem var að koam
frá Hróarskeldu..... ég dreif mig niður í vinnu og sótti bílinn
hans og brunaði út á flugvöll og í þann mund lenti vélin....það
leið svo einhver hálftími þar til bæði Thomas og Andri Þór,(Mimmi í
peysunni) voru komnir út ásamt mörgum öðrum sem maður þekkir til,
þar á meðal Árni Litli, Ási Stóri frændi, Helena Hafþórs, Óli Dan
og frú.... allir að koma að Hróarskeldu.... þetta var víst allveg
hrikalega skemmtilegt og skal ég segja ykkur að það er á dagskrá
hjá mér að fara á Hróarskeldu að ári liðnu, bara að vona að það
verði einhverjar hljómsveitir sem mig langar mikið að sjá...en
stefnan er þessi.......
En þar sem ég fór út fyrir efnið þá sofnaði ég á Dátanum,
ekki áfengissvefn og þykir mér með mikill áfangi að hafa gert
þetta.... þess ber að minnast að í síðustu tvö skipti sem
ég hef farið í bíó, sofnaði ég á báðum myndunum....Da
vinci code í smárabíó og Ice Age í Borgarbíói...og hef ég áður
sofnað í bíó fyrir það..... svo fórum ég, Ingi w, Alice og
Elvar á Strikið áðan að horfa á leikinn milli Portugal og
Frakklands, þar sem Frakkar rétt höfðu það með einu marki
skorað ú víti af Zidane.... þess ber að gea að ég
dottaði létt þar líka þannig að þið skiljið hvað ég á við.....
Plönuð útliega í Hallormsstaðaskógi aðra helgi......
mikið farinn að hlakka til.... Ég, Elvar, Óli, Gústi,
Védís, Ingi W, Alice, Dagný og fleyri vinkonur Védísar
stefnum á að fara á föstudagskvökdinu af stað..... gaman,
gaman....
Fer heim um helgina.... Ásbyrgismót í gangi.... maður lítur
sennilega eitthvað á það... og svo bara hjóla og leika sér....
horfa á úrslitaleikinn í HM og svona...
Læt þetta nægja að sinni... og er farinn að sofa....takið eftir
því hvað klukkan er....en kanski vakna ég aftur kl 12, en þá er
bein útsending frá Rock star Supernova þættinum þar sem Magni í Á
móti sól er að keppa og ræðst hvort hann komist í úrlsitin.....
Morri