Morri bloggar
02.01.2009 18:37:57 / morri

Uppgjör ársins 2008 og framtíðin...

Já gott fólk, 2008 er á enda liðið. 
Frábært ár að mínu mati.  Tapaði engu, enda átti ég ekki skuldir né gerfi-peninga bundna í bréfum og áhættum. 
Allt það bull er okkur/ykkur öllum að kenna.  Allir sem spiluðu með eru meðsekir. 
Mesta rán heimssögunar hefur orðið að veruleika. 

Árið byrjaði svipað og þetta ár, flugeldar og læti.

Það sem stendur hæst er þetta:

6. Jan, byrjaði á því að taka Hiluxinn í gegn, stórt og mikið verk, sem er í rauninni endalaust verk ef út í það er farið.  Klukkustundirnar sem unnar í honum voru sem betur fer ekki skrifaðar niður, af ásettu ráði.  Allt unnið utan vinnutíma og um helgar. OMG hvað ég var að verða brjálaður á þessu verkefni, ætlaði bara aldrei að verða búið sama hvað unnið var mikið!
Verkið hafðist þó af og tókst vel til.  Fór heim á honum í páskafrí 19.mars, svo til tilbúnum....en samt átti eftir að gera eitt og annað....






Hætti á BSA verkstæði eftir 2 ár og 9mánaða vinnu, flutti heim í sveitina...eða á Kópasker, leigði þar hús með Einar Höllu og Elvari í sumar, júní,júlí og ágúst.

Fór í 4 góðar snjósleðaferðir á árinu, í febrúar, mars og apríl.  Snilldar færi í heiðum sveitanna og hægt að fara hvert sem er.  Alveg meiriháttar ferðir.  Fórum og gistum í gangnamannakofa Núpsveitunga tvisvar sinnum, stóran hring upp á öræfi, Haugsöræfi og þar.  Einnig góðan hring á Fjöllum í Kelduhverfi, þar sem meðal annars var farið á Þeystareyki og hæsta tind Tjörness....



Júní mánuður fór svo til allur í refaveiði.  Ég og Árni Sig tókum að okkur grenjavinnslu á Austur-Sléttu næstu 3 árin, ( þ.e. 2008-9 og 10)  Gekk mjög vel og aldrei verið fleiri dýr felld á grenjatíma á því svæði eins og nú, eða 31stk.  Algerlega frábært alltsaman.  Hlakkar ekki lítið til næst....






LUNGA á Seyðisfirði í júlí var líka alveg geggjað, margir samankomnir þar og tekin gott útilegudjamm yfir helgi....toppaði eiginlega Versló.. BARA gaman.


Snilldarskemmtileg hestaferð sem farin var í lok ágúst,  farið úr Presthólum og í Hafurstaði.  Bara gaman, einnig fór ég í 1.göngur í Núpasveit eins og ávallt.  Árleg skemmtun.


Í lok ágúst fluttist ég suður á bóginn,  hóf nám í Tækniskólanum, meistaranám í bifvélavirkjun í kvöldskóla, 15. einingar á þessari önn, lokið með meðaleinkunn upp á 9!  tvær 10jur þar á meðal.  Vann á meðan á bílapartasölu þegar eitthvað var um að vera þar.  Hæstánægður með árangurinn í skólanum.  Námið rúmlega hálfnað núna og restina ætla ég mér að taka í fjarnámi á vorönn 2009 og útskrifast með meistarabréf í bifvélavirkjun í mai.  Það verður eitt af stórskrefum næsta árs ef Guð lofar :)

Í desember flutti ég svo aftur heim í sveitina, Efri-Hóla og þar er stefnan að vera allavega eitthvað áfram, þangað til næstu tækifæri gefast.  Ég allavega nennti ekki að vera í borg óttans lengur.

Margt annað gott og skemmtilegt skeði á árinu, og gleymi ég vafalaust mörgu góðu, hjólatúrar, sleðaferðir, fyllerí og veiðiferðir.  Fjölskyldusamkomur ofl.

Takk fyrir árið vinir, verði 2009 ykkur gott.

Gleðilegt nýtt ár

Morri







» 7 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 00:11:23 / morri

Saga sem kennir okkur....

Saga þessi gerðist í Borgarfirði fyrir nokkrum áratugum.

Eitt sinn var vinnumaður sem var ákaflega mikill dýravinur fékk alltaf soðinn fiskbita hjá húsfrúnni sem hann svo fór með í fjósið til að gefa kettinum vini sínum. Var hann búinn að venja köttin að eta úr höndum sínum, og gat kysi oft verið full gráðugur, þannig að vinnumaður mátti kippa til sín höndunum þegar kysi var orðinn full aðgangsharður.
Nema kvöld eitt eftir mjaltir gékk vinnumaður út undir vegg til að kasta af sér vatni. Sem hann og gerði, kemur kysi askvaðandi að og horfir á með athygli, en svo þegar að síðustu droparnir voru hristir út stekkur kysi upp og læsir klónum og bítur í djásnið.
Hélt köttur að vinur sinn væri þarna með fisk bita á höndunum, en ekki karlmennskuna. Þess ber að geta að eftir læknisheimsókn og svolítinn tíma tókust sættir með þeim vinum, en kysi fékk fiskinn eftirleiðis af disk sem staðsettur var á gólfinu.

Þar hafðiði það.....þetta kennir okkur það að vera ekki of góður við náungan og einnig að við eigum ekki að vera of góð hvort við annað :)

Morri

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 18:47:00 / morri

Einn léttur

Einn glettilegur í tilefni efnahagsvandamála heimsins:

Geir H. Haarde og Davíð Oddson voru staddir í einkaþotu nokkurri þegar Davíð segir við Haarde: "Ef ég hendi 1000kr seðli út, þá geri ég eina mannekju ánægða."
Þá segir Geir H. Haarde: " Ef ég hendi fimm þúsundköllum út, þá mun ég gera 5 manneskjur ánægðar í 1 dag."
Flugstjórinn heyrði samtal þeirra félaga og sagði " Ef ég myndi henda ykkur báðum út, þá myndi ég gleðja heila þjóð sem eftir er ævinnar!"


Morri


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 21:33:43 / morri

Hversdagsleikinn í hnotskurn


Nú er langt liðið á september og ég búinn að vera hérna á stór-Reykjavíkursvæðinu í á 5.viku.
Allt er nú komið í fastann sess og gamla sagan að endurtaka sig.  Maður er að komast í einhverja rútínu.  Hún er ekki eins og síðustu ár....neeeeeii
Hún er einhvernveiginn á þessa leið núna: Vinna-skóli-læra-sofa-vinna etc.
Já hljómar spennandi ég veit....15 eininga nám í kvöld og helgarnámi, mæting kl8 á laugardagsmorgnum, ekki að fíla´ða!

Annars liggur nú bara yfirleitt vel á mér, er ánægður með íbúðina og samleigjendur. 
Hef ekkert komist norður í gæs og á ekki von á því að það gerist.
Fór á föstudaginn með Jóhanni frænda upp á Holtavörðuheiði, óðum straumharða á í mígandi rigningu, löbbuðum 1.7km upp fjall og allt....rennandi blautur.  Heyrðum ekki kvak.
Núlluðum í þeirri ferð allavega....  Það er líka bara svona stundum....mjög skemmtileg ferð samt, alltaf gaman að koma á nýja staði.
Ég semsé sé ekki fram á að koma norður fyrr en um jól, nema kannski eina ferð í rjúpu eða svo.....en annars veit maður aldrei....gæti alveg endað svo að maður fari margar helgar  :)
Ekki laust við að manni langi norður, ekki síst þegar maður heyrir að það sé allt morandi í gæs og göngur um helgina....spurning um að hoppa á laugardaginn??? hehe

Miðauppboðið enn í gangi.....50þús í peningum er hæsta boð núna, svo er einn að skoða skipti við mig á riffli....
Koma svo, þetta getur verið gott fyrir þá sem hafa áhuga á að fara eitthvað annað en til Köben eða London....

Bara láta heyra í sér aðeins....

Morri

» 9 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 18:18:01 / morri

Göngur og réttir


Ég held að ég selji þennan flugmiða sem ég sagði frá í gær.  Hæstbjóðandi fær hann.
Opinn flugmiði til hvaða áfangastaðar sem er í Evrópu með Icelandair fyrir 2.  Fram og aftur og gildir til mai/júní.

Ég er kominn langt að stað í skólanum....þetta gegnur svona allavega...vel held ég samt bara.  Þetta er náttúrulega alveg hundleiðinlegt, en maður lætur sig hafa ýmislegt.

Á morgun liggur leiðin norður í land, flýg norður og verð lentur kl 20:00....næ örugglega ekkert að stoppa á Akureyri og fer beint heim í sveitina.  Göngur eru framundan og ef mér skjátlast ekki, þá er þetta í 10. sinn í röð sem ég fer í 1. göngur í Núpasveit og þykir mér það nú asni gott.
Veðurspáin er góð til smalamennsku enn sem komið er....ekkert of heitt og ekki rigning, ekki til að tala um allavega.....  Það ætti því ekkert að koma í veg fyrir að maður geti tekið "gangna-baðið" árlega sem ég hef tekið síðustu ár þarna uppfrá á föstudagskvöldið.  Þá fer ég nakinn ofan í þvílíka drullu-skítapoll í niðamyrkri og fer allur á kaf nema hausinn.....ef ekki er ís á yfirborðinu eins og í fyrra tek ég nokkur bringusundtök.  Sem betur fyrir er myrkur þegar þetta fer fram, en þetta er oftar en ekki hápunktur ferðarinnar hjá mörgum.  Áhorfendur eru yfirleitt á bilinu 5-10 manns.  Stundum er lýst með vasaljósi til að sjá í hvaða átt á að horfa.
:D hhehehe

Göngur á sunnudagsmorgni eins og venjulega og svo fer maður aftur suður í helvíti á sunnudagskvöldið og þarf að dúsa þar næstu mánuði, eða janfvel alveg fram að jólum!!

Morri


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 22:17:04 / morri

Laugardagstuð

Þetta heitir laugardagstuð, þar sem ég pikkaði þetta á laugardaginn, en vegna bilana á kerfi central.is þá var ekki hægt að setja inn blogg síðan þá.

Nú maður sestur á skólabekk á nýjan leik, eftir 4 ára hlé.....það er ekki laust við að tilfinningin sé  hálfkjánaleg að setjast niður eftir þó ekki nema þetta langan tíma aftur niður við borð og stól í lokaðri kennslustofu.  Og það sem meira er, stólarnir og borðin eru alveg eins og þau voru síðustu 7 árin sem ég ég var í skóla þar á undan....  Eini munurinn er liturinn, gerðin og alveg sú saman, núna eru stólarnir lillabláir en voru áður hvítir.  Merkilegt, framförin og/eða uppfærslan á stólunum er greinilega ekki merkileg.  Borðin eru eins, vagga á gólfinu og standa aldrei nema í 3 fætur í einu.
    Kennslustofurnar eru eins, dúkar á gólfum og hvítir veggir, ég er ekki frá því að það sé sama gólfefni í Tækniskólanum og í Lundi forðum. Kennararnir -....já þeir eru svona svipaðir og þeir voru í VMA og Borgarholtsskóla... flestir sennilega ágætir.
    Og það sem meira er, að námsefnið svipar fáránlega mikið til þess sem maður lærði bæði í grunnskóla og í iðnnáminu.  Bókfærslan er t.d. sú sama (allavega ennþá) og hún var í 10.bekk.... stærðfræðin svipar til 102....leysa jöfnur úr óendanlegum svigum með tilheyrandi x-um og y-lonum!  Ég verð að segja að mér krossbrá þegar ég sá að ég átti að fara að læra einhvern helvítis jöfnuútleysing í meistaraskólum!  Jæja....maður verður bara að taka á því.  Þetta  er ekkert grín nefnilega. 
  Ég er skráður í 15 eininga nám....það er nú bara rétt tæplega dagskóla slurkur á önn.  Sumir meira segja eru að taka minna, það fatta ég ekki.  Það er kennt á kvöldin frá kl 17:10, eftir vinnu hjá öllum, og svo á laugard. morgna!  Já þið lásuð rétt....ég þarf að mæta í skólann kl 8:10 á laugardagsmorgnum!  Ég þarf að vakna kl 7 alla laugardagsmorgna í allan vetur ef ég ætla að klára þetta nám á 2 önnum.......Ég ver vonandi sáttur í vor með Meistarabréf upp á vasann til að flagga í heila stöng. :D

En að öðru....
Ég fékk hringingu um daginn......Úr númeri sem ég þekkti ekki og svarði ég því.
Maðurinn sem hringdi kynnti sig, sagðist heita Sigmar B Hauksson og værir formaður í Skotvís. Ég kannaðist við kauða.  Hann bar upp erindið fljótlega að ég hefði unnið til verðlauna í minkaveiðiátaki sem ég hafði tekið þátt í.  Ég gladdist því. 
    Þetta var þannig að maður átti að senda mynd af sér við veiðar á mink í fyrrasumar fyrir ákveðinn tíma.  Það gerði ég og fékk senda barnælu til staðfestingar á því að ég hafi tekið þátt og jafnframt tilkynnt að ég færi í pott þar sem dregið yrði til verðlauna.... flott mál
    Hann tjáði mér næst að verðlaunin væru ferð til Kaupmannahafnar fyrir 2 fram og aftur.  Þetta væri opinn miði, hann vissi svosem ekkert meira um þetta en það.  Hann sagðist ætla að senda þá til mín og þakkaði ég honum fyrir það og einnig fyrir símtalið.
    Tveimur dögum síðar komu miðar í pósti.  Innihaldið var nú gott betur en hann hafði sagt frá, hvorki meira né minna en "Flugafar fram og aftur fyrir tvo, til hvaða áfangastaðar sem er í Evrópu" gildir til blabla (eitthvað til 1.júní eða mai)!
Þannig að hver ætlar að koma með mér og hvert á að fara ???????
Eða á ég ekki bara að selja þetta og borgar himinhár uppsafnaðar skuldir???


Morri

............

Ég við Þeistareyki á páskadag 2008.  Djöfulli væri ég til í að vera þarna núna í færi
eins og var á þessum degi.......



» 13 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 14:04:45 / morri

Þetta reeeddast!

Þegar ég ók af stað frá Akureyri á laugardaginn var, til langdvalar á verri helmingi landsins vissi ég ekki hvað byði mín næstu daga og vikur.....

Ég hafði ekki húsnæði til að gista í og búa, hafði ekki vinnu og hafði ekki hugmynd um hvort ég væri skráður í skólann eða ekki.  Sem var jú ástæðan fyrir allri þessari suðurferðarrugli.

Málin eru nú farin að skýrast, á 4. degi frá því ég kom.  Á leiðinni suður ákváðum við að festa íbúð í Kópavoginum, og fáum við hana 1.sept.  Ég, Gústi, Védís og Eyjó verðum í henni í vetur, allavega er það planið svona fyrst um sinn.  1. mál því nokkuð klárt.

Hvað vinnuna varðar þá var það svona næstum komið á laugardagskvöldið, en þá var hringt í mig og mér sagt að mæta á mánudeginum og skoða málið.  Í gær ákvað ég semsagt að fara að vinna á bílapartasölu í Hafnarfirði.  Byrja sennilega þar bara á morgun eða hinn.  2. mál komið í hús.

Skólamálin voru öllu heldur meira vesen.  Ég mætti á mánudagsmorguninn á skrifstofu skólans, daginn sem kennsla átti að hefjast.  Eftir töluverða bið í röð kom að mér og þá var mér sagt að ég væri hvergi til á skrá hjá skólanum, ekki frekar en amma eða mamma....þá fór nú að vandast málið.  Innritun var lokið og ekki viðlit að redda þessu með auðveldum hætti. 
    Ég sagði alla mína sögu og vældi hvað ég gat í þeim sem ég fékk að tala við þarna fyrst um sinn.  Árangurinn var ekki góður að mínu mati þó ein manneskja sýndi þessu skilning og vildi allt fyrir mig gera.  Hún gaf mér samband við næsta mann fyrir ofan hana....þann mann hef ég töluvert verið í sambandi við síðustu mánuði og er hann frekar hrár á manninn.
     Hann vildi helst ekkert fyrir mig gera frekar en rónann niðri í bæ og gaf skít í mig, þannig séð.  En þegar ég var búinn að bæði væla og hvessa mig fattaði hann loks um hvað málið snérist.  Hann sagði mér að skrá mig í fjarnám ( ég fór suður því að ég vildi alls ekki fjarnám, og kvöldskóli var hin leiðin, og vildi ég hana frekar en ekkert) FJARNÁM......"já, það er eina sem ég get boðið þér uppá, þú skráir þig bara í það og svo færum við þig bara yfir í kvöldnám þegar lýða tekur á önnina"
     Ég jánkaði þessu bara, það væri nú sennilega betra að gera þetta en ekkert, það væru þá til einhverjar upplýsingar um mig í skólum ef ég gerði þetta og því sótti ég um.
    Þegar því var lokið var aftur sama sagan, innskráningin hafði ekki tekist og ég hvergi til.  Ég fór því enn á ný á skrifstofuna og mátti bíða góðan hálftíma eftir að getað tala við konuna sem var sem almennilegust og náði ég loks tali af henni, skýrði fyrir henni málin á nýjan leik og þá fór hún í símann og sagði mér svo að það væri að koma maður núna sem ætlaði að taka mig og fara í gegnum þetta á klára dæmið, ég þakkaði fyrir mig.
    Innan skamms kom glaður og hress maður, tók í spaðann á mér og sagðist heita Haukur.  Mér leist mjög vel á hann, ég skýrði út fyrir honum allan pakkann og kvartaði sáran undan þessum sem vildi skrá mig í fjarnámið og fleira.  Þessi maður þekkti Agnar Ólason vel, enda hann búinn að vera þarna í 2ár eða svo.  Núna fyrst fór boltinn að rúlla.  Hann kallaði í einn mann æðri sér og fóru yfir málið, sem þykir einstaklega sérstakt.  Ég kominn alla þessa 600km leið og í þessari leiðinlega stöðu.  Þeir vildu allt fyrir mig gera og trúðu hverju orði sem ég sagði.
Þeir tóku niður allar helstu upplýsingar og skoðuðu málið til loka.  Allir áfangar sem ég var skráður voru yfirfullir og glapræði að troða fleyrum í þar inn, það sá ég líka.  Eftir ca. 1 klst. voru þeir búnir að átta sig á öllu, tóku viður númerið hjá mér og sögðu að þeir gerðu hvað þeir gætu til að redda þessu.  Ég átti bara að mæta í tímann um kvöldið( gærkvöldi) þó svo að ég væri ekki kominn inn, sem ég og gerði.  Missti samt úr mánudagskvöldið, en hvað um það.
    Ég hringdi svo í þennan góða mann áðan og spurði hann um stöðu mála.  Hann var hinn hressasti ennþá og tók mér vel og sagðist vera búinn að skrá mig inn í skólann og allt væri í góðum málum, ég ætti eftir að borga skólagjöldin en hann treysti mér fullkomlega fyrir því, og vissi að ég ætti eftir að borga þau, það mundi bara leysast síðar.  Ég er því kominn inn í skólann eins og hver annar, kominn með aðgang að nemendur.inna.is og stundaskráin klöppuð og klár þar.  Þetta REDDAÐIST!!! 

Núna er ég eins og áður sagði til húsa hjá Lovísu frænku og hennar fjölskyldu í Hafnarfirði, ekki amalegt það.  Ég býð nú bara eftir að komast í íbúðina í Kópvogi...þá tekur við það sem þarf að REDDA þar, en það er þvottvél, þurrkari, sófi og rúm handa mér.....

Að lokum við ég segja frá fyrsta tímanum sem ég fór í í skólanum í gær.
Ég get svarið það, það var gert grín af Kópaskeri í fyrsta tímanum sem ég fór í!  Enginn vissi hvaðan ég var og ekkert hafði verið talað um Kópasker á neinn hátt á undan.
Það var bara verið að taka dæmi upp á töflu um verð á hárgreiðslustól, og spurt hvað svoleiðis kostar....einhverjar tölur voru settar fram og einn sagði að hann hefði heyrt niður í 50þúsund kr Þá sagði kennarinn " við erum ekki að tala um Kópasker! og þá hlógu allir eins og hálfvitar.  Nemandi sagði þá, " þetta var nú bara í Kópavogi"....
Skemmtilegt, þetta er ekki í fyrsta, annað, né 3 sinn sem gert er grín að Kópaskeri í tíma án þess að þeir viti hvaðan ég er.....
Og svo auðvitað allir dreifbýlisbrandararnir sem eru sagðir þegar upp kemst hvaðan maður sé....

   Ég með Bubbu, hvolpinn þeirra Otto og Eddu á menningarnótt 2008

Morri


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 21:20:00 / morri

Fréttir af kjellinum

uu....já

Ég sjálfur er fluttur suður á nýjan leik.  Hef sagt skilið við sveitina góðu og húsið á Skerinu í bil.

Frábært sumar að baki, mikið unnið bæði í grenjavinnslu og svo mála hjá Trémál í Lundi í nærri allt sumar.  Náðuð 31 ref í sumar við Árni og þykir það mjög gott, held að það hafi ekki veiðst fleiri á þessum svæði áður og ekki náðist svona tala á svæðunum í kring heldur að ég best veit.

Ég, Gústi, Védís og Eyjó ætlum að leigja saman í vetur, fáum íbúð afhenta 1.sept og er hún að Furugrund 54 í Kópavogi.  Flott mál það.

Hvað varðar skólann sem ég ætla að fara í þá er það smá vesen núna, hvergi til upplýsingar um að ég hafi nokkurntímann sótt um skólann og þannig..... varla séns að koma mér inn.  Ég hef því sótt um fjarnám og vonanst til að geta leist þetta leiðinlega mál á morgun, ég er jú búinn að leggja land undir fót til að geta farið í þetta og því langt því frá sáttur með hvernig mín mál eru hvað þetta varðar!

Vinnu er ég ekki búinn að ganga frá, en það eru spjót á lofti hvað það varðar.

Ég er semsagt kominn suður og bý í tösku sem stendur.  Var hjá Eyjó á laugardagskv og svo er ég kominn til Lovísu frænku og verð þar þar til íbúðin er klár.

Maður verður bara að gera gott úr þessu og halda ró sinni.....hef trú á því að þetta fari allt sæmilega.....veðrur maður ekki að vona það bara....bjartsýni  er nú eitt af mínum sérkennum og þar við situr.....

Held að þetta sé nú líka yfirdrifið nóg í bili :)

Morri

» 4 hafa sagt sína skoðun

06.08.2008 21:03:10 / morri

Morrinn lét undan

"Ég ælta aldrei að fá mér "myspace" eða hvað þetta heitir þetta helvíti!  " hefur oft heyrst úr mínum kjafti...eða álíka setningar.

Nú verð ég að éta það ofan í mig.....ég gerði fyrir mörgum mánuðum myspace síðu, gerði ekkert á henni og addaði engum og sagði engum frá.....núna er ég búinn að gera aðeins í henni...kann ekkert á þetta...og nenni ekki að hella mér í þetta allt saman....
Adda vinum og þannig er allt eftir og læra á þetta .....
Ætlaði bara að deila þessu með ykkur... heh

Myspace urlið er: www.myspace.com/morri_

Morri kveður að sinni


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.07.2008 23:24:47 / morri

Ruglið


Ég held að það sé best að ég hætti að grenja.....allavega yfir mörgu.
Ég hætti sennilega aldrei að tuða og bölfa yfir ómerkilegustu hlutum, enda er það hluti af mínu fari hegðun að tuða yfir öllu og öllum.  Allt fáránlegt og asnalegt, hvað sem allir segja og gera.  Ég commenta á flest og segi hvað mér finnst.....það er ÉG!

Ég er á krossgötum, villigöutm, gatnamótum.  Í hvaða átt á ég að fara?

Eða nei, ég er ekki á neinum gatnamótum.  Ég ek eftir beinum breiðum veg, auðvitað.  Ég hef ávallt farið mína leið.  Ég ætla að gera það áfram, hef ekki látið neitt stoppa það sem mig langar virkilega.  Ég geri það sem ég vil þegar ég vil.  Eins og flestir vita hef ég farið mínar leiðir þegar mér sýnist án þess að plana langt fram í tíman allt sem ég vil gera.  Í stórum dráttum hef ég farið eftir ákveðnu formi sem ég setti mér á ákveðnum tíma.  Það var þegar ég var 16 ára.  Síðan eru liðin 6ár.  Já shitt!  Nú er því plani að verða lokið, eða að mestu leiti.  Einn stóráfangi er þó eftir og hef ég verið að velta þeim hluta leiðarinnar fyrir mér lengi.  Nokkra mánuði.  Ég tók fast í taumana í byrjun árs og byrjaði þennan kafla sem eftir er.  Núna síðustu 5-6 daga hef ég verið að hugleiða að feta útaf þessari braut og gefa skít í restina af því sem áður var planað.  Ég var kominn með það á ystu nöf.  Ég var kominn með vinnu allan næsta vetur með feiknar tekjum .  Skippaði því í dag/gær, fullkomlega í dag.

Ég ætla að fara suður í ágúst og fara í nám, meistaranám í bifvélavirkjun.  Iðnskólinn í Reykjavík býður upp á þetta nám, sá eini á landinu.  Ég þarf því að leita mér af húsnæði sem ég er sáttur með á stór-Reykjavíkursvæðinu.  Ég þarf að finna mér vinnu þar sem ég er frekar frjálslegur með mætingu.  Svo þarf maður auðvitað að sækja um skólann og borga þau háu gjöld sem því fylgja.....svosem ekki yfirstíganlegt.  En mér finnst þetta stórt skref.  Ekki eins stórt og á sínum tíma, þegar ég fór fyrst suður í nám.....það tók á.
Ég hef á tilfinningunni að þetta verðu mun auðveldara en þá og BARA gaman.  Ég er sannfærður um að ég geri þetta vel og örugglega.  Klári dæmið.

Framundan er höfuðverkur en um leið gleði :)

Kópaskerslífið er snilld, bara best að gera verið heima í sveit og á Skerinu í sumar.  Gæti vel verið hér allt árið, klárlega.  Samt frekar leiðnilegt að þurfa alltaf að vera að vinna svona.....maður hefur nóg með áhugamálin og það sem manni langar að gera án þess að gefa sér tíma í það.. haha :D

Veit að það eru margir sem ekki vilja sjá meira af tófu-myndum, enda mynda ég þær alltaf þegar þær hafa endað sitt líf, ég eyði ekki tíma í myndaskot fyrr en álvuru riffil/hagla skot hefur riðið af. hehe....... Þannig að ef menn vilja sjá fleiri þannig myndir bendi ég mönnum á að koma við í Ekrugötu 4 og skoða allt að villd með leiðsögn.  Mæli með að menn hringi á undan sér, þar sem það telst til undantekkninga að undirritaður sé heima alla jafna.;D

Fór á krossarann minn fyrsta skiðti í langan tíma á sunnudagskvöldið....djöfulli var það gaman....var bara einn og það var furðu blautt mið að við árstíma......þessvegna varð "drullumallarinn" svona "drullugur" eftir ferðina :)



LungA, Listahátíð ungs fólk á Austurlandi er framundan, ég Gústi og Elvar ætlum að skella okkur héðan ásamt Láru D héðan af skerinu.  Fleira gott fólk kemur frá Akureyri ásamt öllum hinum.  Förum á föstudaginn, verður bara gaman.  Allir með fulle 5 mæta ;) heh....

Morri


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 15:10:01 / morri

Grenjablogg


Best að láta aðeins heyra í sér....ekki mjög líflegt á netinu frekar en venjulega á þessum tíma.  Maður rétt lítur á það helsta og fer svo í eitthvað annað, því ekki nennir maður að hanga í tölvunni þessa fáu sumardaga sem okkur er útdeilt á ári.:)

Það sem ber hæst þessa daga hjá mér er grenjavinnsla- leita og liggja eins og gengur.  Ég og Árni Sig frændi erum saman með Austur-sléttuna og gegnur vel enn sem komið er.
1.grenið er fullunnið.  Tvö hvít fullorðin dýr, ung.  og 6 hvolpar, allir hvítir, kynin jafnt skipt.
2. grenið er með báðum fullorðnu dýrin dauð, mórauður refur og hvít læða.  Hvolparnir þar eru eftir, 6stk, ef marka má legöratalningu.
3.grenið fannst í fyrradag. Langt inni í heiði og hvolpar ekki farnir að láta bera á sér.   Settum það á hold í bili.

Leitum nú eins og við eigum lífið að leysa.  Bæði á hestum og gangandi.

Ég er semsagt kominn heim í sæluna, gæti ekki verið betra.
Fjölskyldumót næstu helgi á Skerinu í Skógaætt.
Fátt annað planað í sumar, gott mál.  Ekkert betra að það sé pökkuð dagskrá eins og síðustu sumur :)

Læt fylgja nokkrar myndir af 1.greninu


Refur sem Ómar skaut með þessu vopni.


Læðan sem Árni skaut með sínum riffli


Bæði dýrin, Sako-inn minn og dýrin


Ómar skar læðuna og taldi í henni sex legör.(svörtu punktarnir,hnífoddurinn bendir á einn þeirra.  Þetta þýðir að hvolparnir geta ekki verið fleiri en 6, það eru miklar og góðar upplýsingar sem við fáum með þessu.


Daginn eftir að dýrin voru felld komu þessir þrír hvítu refir í boga hjá okkur.


Nokkrum dögum síðar komu þessar tvær hvítu læður í bogana, heldur varari um sig en rebbarnir.


Enn síðar kom þessi tortryggna læða í boga og þar með var grenið fullunnið.

Bogarnir sem við notum eru nefnast Glefsur, þær drepa mjög fljótt og eru viðurkenndir bogar til veiða sem þessa.

Morri




» 10 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 00:46:10 / morri

Búflutningar

Sælar....

Senn líður þessi mánuður undir lok, erfiður eins og allt þetta ár. 

Fleira líður undir lok, ég á aðeins eftir að vinna 3 daga á Akureyri í viðbót og þá mun ég flytja heim í sæluna.  Er búinn að taka á leigu hús á Kópaskeri ásamt Einari Höllu (Trúbba, íslendingi, Guðmundsyni) oft kenndur við Ríben og Elvar Má Stefánhaukssyni.

Framundan er gott sumar, með nóg af tíma til að gera eitthvað skemmtilegt, ekki endalausar ferðir fram og aftur Ak-Kópasker eins og síðustu sumur.

Síðasti vinnudagur á föstudaginn, 30.mai.

Refavinnsla hefst fljótlega í byrjun júní og síðan tekur vinna með Jóni Kr frænda í sumar.

Næsta vetur er svo áformað að fara í skóla í Reykjavík, allavega reyna að auka vit sitt á einhvern hátt.  Margt er í bígerð og verður nánar sagt frá síðar.

Sælar......

Morri

Lýður er laumulegur-vinur minn Einar

» 7 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 01:25:31 / morri

Hilux

Já kæru lesendur.....
Ég held að ég geti fullyrt að ég nú hef ég lokið einu af stærstu verkefnum sem ég hef tekið að mér um ævina sem lengist jú dag frá degi.



Við pabbi ákváðum í haust að fara í að laga gamla Hiluxinn sem pabbi keypti árið 1994.  Hann var farinn að láta á sjá....í fyrstu átti þetta að vera svona nett yfirferð....laga boddý svolítið, skipta um pall og framhurð....jú og bæði  frambrettin....Eitt leiðir af öðru í svona verkefni.
Við gengum alla leið og tókum bílinn í nefið.  Allt ryð fjarlægt, skipt um pall, bílstjórahurð, frambrettin bæði, bíllinn allur sprautaður skit um sílsa á parti og allt gert eins og nýtt.... . Nýir drullusokkar og svunta.  Felgur sandblásnar, málaðar og ný dekk...annar afturstuðari ofl og ofl......Bíllinn er ídag eins og nýr, og það bókstaflega.

Nánast allt þetta ár hef ég verið nærri öllu kvöld eftir vinnu í þessu verkefni og yfirleitt verið að hætta í kringum miðnætti, þó einnig hafi ég verið töluvert lengur oft á tíðum, og eitthvað kvöldið til að ganga 5 um nóttina...Margar helgar hafa einnig legið í valnum og útkoman úr botnlausri vinnu er gríðarlega skemmtileg :)

Tók mikið af myndum og ætla ég að sýn þær helstu hér.....þetta er býsna mikið.  Það er í góðu lagi þar sem ég hef eitt svo miklum tíma í þetta....

Þetta er uppskera ársins, það sem af því er liðið!  Myndirnar segja alllllllt














































Flottur!!

Morri


» 19 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 00:50:21 / morri

Grobb-Blogg

Já nú er komið að grobbblogginu sem allir hafa beðið spenntir eftir....held að sumir eigi eftir að verða fyrir vonbrigðum en aðrir jafnvel eitthvað annað....hehe :)

Grobb-blogg er blogg þar sem maður er að monta sig af einhverjum sem maður hefur keypt eða fengið......já eða ef manni hefur gegnið vel í einhverju....

Í þessu blogg ætla ég að segja frá nýjustu fjárfestingunum mínum.

Fyrst er þar að nefna haglabyssa sem ég festi kaup á í ágúst 2007, hálfsjálfvirk byssa að gerðinni Beretta Xtrema 2.


Þessi byssa hefur reynst mér svakalega vel en sem komið er, held ég hafi náð að drita einhverja 80 fugla með henni nú þegar.  Snilldarvopn sem kostar 140.000kr út úr búð.

Næsta vitleysa sem mér datt í hug að kaupa var í nóvember.... það tæki sem við köllum snjósleða eða vélsleða......en ég kalla þetta snjó-þotu ( rétt eins og jet-ski er kallað sæ-þota) 


Gerðin er Ski-doo Mach Z 780cc árg 1997 151hestafl góðan daginn!
Snilld að leika sér á þessu og þið hafið vafalaust séð hann á myndum frá snjóþotuferðinni okkar Gústa um daginn.  Kostaði mig 130.000kr í stofnkostnað, og svo eitthvað eftir það til að koma honum í stand.  Vel varið gjaldinu í þennan.

Ekki er öll vitleysan eins....þegar ég mér dettur sniðugt í hug að kaupa verð ég veikur eins og ég kalla það....ég hreinlega hætti ekki að hugsa um það fyrr en það er komið í hönd, eins og margir vita læt ég mér ekki nægja eitthvað sem ekki þykir fyrsta flokks....
Í janúar hélt ég ekki vatni fyrir næsta fyrirbæri.  Það er riffill sem ég hreinlega gat ekki hugsað mér að sleppa að kaupa.  Í Janúar lét ég verða að því að punga út fyrir honum og svo í gær fékk ég á hann kíki sem mér þótti við hæfi á þetta og var mér að skapi.






Riffill:  Sako Varmit Laminated Steinless með flauted hlaupi, þungu og ryðfrýju.  Caliberið er .308 win.  Skeftið er úr ljósu líntréskefti sem mér þykir afar flott. Verð: 175.200kr
Kíkirinn er Zeiss Victory divary 6-24X56 T* með mil-dot(43) krossi og ljósi. Verð: 198.000kr
Festingarnar eru orginal Sako og kosta 10-12.000kr
Tvífóturinn er Harris með veltingi og hann er á ca. 16.000kr
Taska utanum þetta er væntanleg á morgun...

Með rifflinum fékk mér mér byssuskáp jú....hann verðsleggst á 36.000kr

(ekki mínar byssur í þessum skáp)

Ég veit að flestir halda að ég sér orðin galinn...og það er að vissu leiti rétt...
Einhverjum kann að finnast þetta ansi dýrt spaug allt saman....
Hver hefur sín áhugamál, og þarna er mitt.  Reyndar einhver vinna sem kemur inn á byssurnar og það næstu árin, það er klárt.  Refariffillinn klár í slaginn og haglarinn líka.

Trikkið er að vera NASKUR, nýskur og NÆJUSAMUR

Sögunni verður þó að fylgja að í tveimum tilfellum var tekið lán, annað greitt upp innan viku, hitt er enn vel hátt ;)

Kveð í bili, næsti verður sennilega með öðru sniði.  Hálfgerð uppskeruhátíð það sem af er ári.....!

Morri

» 17 hafa sagt sína skoðun

29.02.2008 19:29:22 / morri

Hlaupársdagur

Það má menn sanni segja að margt geti skeð á einum degi, hvaða dagur er betri en hlaupársdagur til að plana, framkvæma og skemmta sér?

Í dag er margt að ske.

Ég mætti í vinnuna eins og venjulega, sá dagur var öðruvísi en aðrir.  Aðeins ég og verkstjórinn vorum á staðnum og frekar stífur dagur þess vegna.  Rétt eftir hádegi skrifaði ég undir samning sem ég hafði komið á að yrði gerður í gær.  Sá samningur felur í sér að ég er búinn að taka að mér leit á grenjum og grenjavinnslu á austur-Sléttu næstu til ágústloka 2010 með Árna Sig frænda.
Þetta er stór áfangi fyrir mig, þetta er hlutur sem ég hef stefnt að lengi og er orðinn að veruleika ansi mikið fyrr en ég átti von á.  Mjög ungur að aldri og ekki lífsreyndari en þetta.
Hinsvegar tel ég mig ráða við þetta verk, geta skilað því eins vel og möguleiki er á, annars tæki ég þetta ekki að mér.  Etir að hafa unnið vel góðan stubb eftir að vinnu átti að ljúka fór ég á fann framkvæmdastjóra fyrirtækisins og tilkynnti honum að ég segði upp vinnunni frá og með deginum í dag.  Það þýðir að síðasti dagur minni í vinnu á Akureyri í bili er 30.mai.

Í sumar ætla ég að opna augun og anda með nefinu.  Júnímánuður fer að miklu leiti í grenja-vinnu og eins eitthvað í júlí ef til þarf.  Eftir þann tíma tekur óvissan við, ég ætla að vera laus við í sumar, lauslátur??? hehe
Hvað haustið ber í skauti sér er óvíst.  Ég er þó nokkuð viss um að ég sest á skólabekk á nýjan leik, stefnan er tekin á að fara í meistaranám og fá útgefið Meistarabréf, með meistararéttindum í bifvélavirkjun næsta vor.  Enn er ekki ákveðið hvar ég verð, þó er líklegt að ég verði á höfuðborgarsvæðinu, þó einnig möguleiki á Akureyri aftur.

En aftur að deginum í dag....
Ég kvöld heldur Óli bróðir upp á tvítugsafmæli sitt með trompi, bollu og öllu tilheyrandi.  Mikil stemmning er í loftinu.  Herlegheitin byrja kl 10 á veitingastaðnum Plaza við Geislagötu. :)

Ætla ekki að segja meir í bili....en ég hef af nógu af taka.....

Gangið hægt um gleðinnar dyr....



Næsti pistill verður grobb-pistill, passið ykkur bara ;)

Morrisey


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 114992
Dagsetning
19. maí 2012